VOLK

Ég vil benda öllu hugsandi fólki á nýja diskinn með laibach: volk, þeirra eigin túlkanir á 14 þjóðsöngvum. 

Snillingar!

Ég veit ekki hver eða hverjir það voru sem hafa skírt dýrategundir í gegnum tíðina en ég væri alveg til í að taka í hendina á honum/þeim því þeir eru greinilega snillingar.   Hugsið ykkur manninn sem að sá fyrstur stóran sjófugl svartan og hvítan að lit og sagði "aaaah þetta er Himbrimmi".  Eða sjómanninn sem að veiddi fisk og sagði "já þetta er GRÁSLEPPA"!.   Snillingar hreint út sagt.


Orð

Ógeð  Óbermi  Óhræsi  Óknytti  Óféti

Stafurinn ó sem forskeyti þýðir í raun "ekki" samanber ósatt sem er "ekki" satt.  Mig langar því að vita hvaða jákvæðu merkingu orðin geð, bermi, hræsi, knytti og féti bera.


Tvífarar

jude law      Emu

Þeir eru alveg eins!


Hvernig?

"When I watch TV and see those poor starving kids all over the world, I can't help but cry. I mean, I'd love to be skinny like that, but not with all those flies and death and stuff."

-Mariah Carey


Sama hárkolla?

leo          ralph_cifaretto

 


Neue Conservativ

Laibach II

Þennan dag 1992 viðurkenndi alþjóðasamfélagið sjálfstæði Slóveníu og Króatíu.  Til hamingju Laibach.

 


Touched by the hand of Goth

Ég geng mjög oft í svörtum fötum, ástæðan er sú að mér finnst svartur litur fallegur og rólegur litur.  Fólk hefur hinsvegar oft spurt mig hvort að ég sé "GOTH" af því að ég gangi í svörtu.  Svarið er já ég er ostrogoth.


Everything counts in large amounts

Ég vil koma síðunni adoption.co.uk á framfæri við alla, kíkið á hana.

Hyena


Þýskaland

Almenningsálitið á Þýskalandi er almennt ekki gott þegar að það er miðað frá sögulegu samhengi því fólk minnist annaðhvort þriðja ríkisins eða Martin Lúthers.  Þriðja ríkið veldur almennt ekki mikilli gleði hjá fólki enda ríki byggt á því hverjir ættu ekki að vera þegnar þess fremur en hverjir það ættu að vera (sem reyndar er enn vinsæl stefna í utanríkismálum) sem og ofsóknum gegnt þeim sem að ættu ekki að vera þegnar þess.  Martin Lúther var svo örlagavaldur að trúarbragðastyrjöldum Evrópu ásamt Jan Huus og Jóhannes Calvin sem að ullu töluverðri eymd, en einnig skapaði hann afskaplega óumburðarlynda siðfræði sem að varð kveikjan að t.d. Púritanisma.  Þrátt fyrir allt þetta eru þessir tveir þættir ekki það versta sem að Þýskaland hefur leitt af sér.

BONEY M er það versta sem að Þýskaland hefur leitt af sér.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband